Félag Grímseyjarvina hefur að undanförnu unnið að því að kom upp ljósmyndasíðu fyrir Grímsey. Nú er þessi draumur okkar að verða að veruleika. Friðþjófur Helgason o.fl. eiga í fórum sínum þúsundir ljósmynda frá Grímsey, sem eru teknar á ýmsum tímum, þær elstu frá árinu 1902. Nú þegar eru komnar um 1000 myndir á vefinn og mun þeim fjölga á næstu vikum og mánuðum, auk þess sem þær verða skráðar. Ég vona að Grímseyingar og aðrir áhugamenn taki þessu framtaki okkar vel og njóti þess að skoða myndirnar. Nánari kynning á vefnum verður síðar hér á síðunni. Ef þið ágætu Grímseyingar og aðrir vinir Grímseyjar hafið einhverjar spurningar varðandi vefinn eða félag Grímseyjarvina, þá endilega sendið mér línu á netfangið: helgidan@gmail.com eða hringið í mig í síma 898-0298. - Helgi Daníelsson
|